|
NÁKVÆMAR RÉTTINGAR
Hjá ÁSMEGIN er notaður fullkominn CELETTE réttingabekkur með NAJA mælingakerfi. Skemmdir bílar eru settir á bekkinn og mældir af mikilli nákvæmni. Hægt er að mæla skekkjur í bíl með að samræma krossmælingar í grind. Einnig er hægt að taka upplýsingar frá framleiðanda um lengdir milli punkta og bera saman við samavarandi punkta í skemmdum bíl.
Þegar skemmdur bíll er tekinn til réttingar er hann fyrst klemmdur fastur í bekkinn. Síðan er mælitæki sett á sérstaka braut í bekknum, sem sendir þráðlaust upplýsingar í NAJA tölvuna. Þá liggur fyrir hvaða punktar eru á röngum stað og hve mikið þarf að færa þá til að fá grind bílsins rétta.
Allir bílaframleiðendur gefa upp mælipunkta til alþjóðlegrar skrár hjá AUTODATA og réttingaverkstæði geta svo gengið að þeim upplýsingum á einum stað fyrir allar framleiddar gerðir. |
|
 |