CABAS er upplýsingakerfi fyrir tjónamat sem er upprunnið í Svíþjóð og er nú ráðandi í norður Evrópu. Í CABAS eru staðlaðar einingar fyrir viðgerðir á einstökum hlutum, þ.e. hve mikinn tíma tekur að gera við og hvað þarf til viðgerðarinnar. Þannig geta verkstæði og trygginafélag fengið áreiðanlegt mat á viðgerðakostnaði tafarlaust eftir skoðun hjá ÁSMEGIN. Hvert og eitt verkstæði getur líka komið sér upp námkvæmlega sundurliðaðri skráningu á stærri verkum, til dæmis 38" breytingu á tilteknum jeppa. CABAS er nú notað af tryggingafélögum á Íslandi og nágrannalöndunum við tjónamat bifreiða.